Rafhleðslustöðvum hefur verið komið upp við fimm af eldri húsum félagsins.
Samfélag og umhverfi
Búseti vill vera til fyrirmyndar í umhverfismálum. Við erum með vistvænar áherslur í rekstrinum undir kjörorðinu Græn búseta.
Fræðsla og hvatning. Félagið vill efla þekkingu og umhverfisvitund með fræðslu til íbúa, starfsfólks og verktaka um umhverfismál.
Mælanleg markmið. Innan Búseta er starfrækt umhverfisnefnd sem innleiðir markmið og mælikvarða. Árlega gefur Búseti út UFS sjálfbærniskýrslu byggða á umhverfisstjórnunarkerfi Klappa. Við stefnum á áframhaldandi kolefnisjöfnun á starfsemi félagsins samhliða mælanlegum loftslagsmarkmiðum.
Vistvæn innkaup. Leitast er við að kaupa umhverfisvottaðar vörur og þjónustu umfram aðrar á öllum sviðum starfseminnar.
Ábyrg orkunotkun. Við viljum draga úr orkunotkun, ekki síst við notkun óendurnýjanlegra orkugjafa. Áhersla er á stafrænar lausnir, orkuskipti og gott orkueftirlit.
Virkur samgöngumáti. Við viljum hjóla og ganga og bjóðum upp á samgöngusamninga til að hvetja til þess. Auk þess er aðgengi íbúa að góðum almenningssamgöngum lykilatriði.
Sjálfbær mannvirki. Við nýframkvæmdir, endurbætur og viðhald fasteigna stuðlar félagið að umhverfisvænni byggingum. Leiðarljós okkar við hönnun og efnisval grundvallast á heilnæmi og líftímanálgun efna.
Flokkun og endurvinnsla. Samhliða áherslum um vistvæn innkaup hefur Búseti sett sér markmið um lágmörkun úrgangs og aukið endurvinnsluhlutfall.
Rafhleðslustöðvum hefur verið komið upp við fimm af eldri húsum félagsins.
Búseti hóf flokkun á lífrænum úrgangi í skrifstofuhúsnæði.
Tveimur eldsneytisbílum var skipt út fyrir rafbíla. Fyrirtækið notar nú fjóra rafbíla.
Sápuílátum úr plasti var skipt út fyrir margnota sem fyllt er á eftir þörfum.
Lögðum drög að aukinni verðmætasköpun með þátttöku í samkeppni um Grænt húsnæði framtíðarinnar á vegum Reykjavíkurborgar.
Frekari skref voru tekin í LED væðingu starfsstöðvar Búseta sem hófst árið 2018.
Tókum fleiri rafmagnsbíla í notkun. Fyrirtækið notar nú tvo rafbíla.
Losunarkræfni starfseminnar minnkaði milli áranna 2020 og 2021.
Búseti hóf að kolefnisjafna starfsemina með því að gróðursetja tré til móts við losunarkræfni, í samstarfi við Kolvið.
Búseti birti í fyrsta sinn UFS sjálfbærniskýrslu í samvinnu við Klappir.
Til að stuðla að heilsusamlegum og vistvænum fararmáta var tekið í notkun rafmagnshjól fyrir starfsfólk.
Búseti hóf notkun á rafmagnsbílum og er markmið félagsins að bílaflotinn verði allur rafvæddur árið 2025.
Greining á umhverfis, félags og stjórnarháttum (UFS) leiddi í ljós að Búseti fékk 74 stig af 100 mögulegum. Það er vel fyrir ofan aðra útgefendur skuldabréfa.
Markmið Búseta er að 90% af sorpi sem til fellur á skrifstofu félagsins verði flokkað árið 2030. Árið 2020 var hlutfallið 54,1% en var 39,5% árið á undan.
Búseti býður starfsfólki upp á samgöngusamning vilji það tileinka sér vistvænar samgöngur til og frá vinnu.
Settum upp rafhleðslustöðvar við skrifstofu Búseta. Það er liður í að ná markmiðum okkar í orkuskiptum.
Ný umhverfisstefna og heimsmarkmið valin: Aukinn jöfnuður, Sjálfbærar borgir og samfélög, Heilsa og vellíðan, Ábyrg neysla og Sjálfbær orka.
Búseti vinnur ötullega að því að uppfæra ferla og þjónustu fyrir notendur með stafræna umbreytingu og umhverfið að leiðarljósi.
Við gerðum samning um deilibílaþjónustu við Zip Car fyrir íbúa Búseta við Einholt og Þverholt.
Búseti leggur áherslu á umhverfisvænleika þegar kemur að vali á lýsingu í fasteignum félagsins. Þegar hefur verið skipt um lýsingu að hluta á starfsstöð okkar.
Átak hafið til að stuðla að pappírslausum viðskiptum. Við hvetjum alla sem senda reikninga til Búseta að senda þá með rafrænum hætti.
Samkvæmt byggingarreglugerð er gert ráð fyrir rafhleðslumöguleika við nýbyggingar okkar. Allar aðrar fasteignir og búsetufélög eiga möguleika á rafhleðslu byggt á samkomulagi sem Búseti hefur myndað.
Hófum að mæla kolefnisfótspor á eigin starfsemií samstarfi við fyrirtækið Klappir.
Búseti gerðist virkur aðili að Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð.
Búseti gerðist virkur aðili að Grænni byggð, vettvangs um sjálfbæra þróun byggðar.
Búseti starfar með sjálfbærni að leiðarljósi og leggur áherslu á að draga úr kolefnisspori félagsins og leggja sitt að mörkum til að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar.
Skýrsla og áritun framkvæmdastjóra vegna sjálfbærniuppgjörs Búseta fyrir árið 2022 er í samræmi við ESG-leiðbeiningar sem Nasdaq á Íslandi og Norðurlöndunum gáfu út á árinu 2019, leiðbeiningum sem settar voru fram árið 2015 af Sameinuðu þjóðunum, samtökum um sjálfbærar kauphallir (Sustainable Stock Exchange Initiative) og vinnuhópi hjá Alþjóðasamtökum kauphalla (World Federation of Exchange). Einnig er vísað í tilheyrandi viðmið GRI Standard (e. Global Reporting Initiative, GRI100-400) og meginviðmið (e. Reporting Principles, P1-10) alþjóðasáttmála Sameinuðu Þjóðanna (United Nations Global Compact, UNGC).
Búseti notar stafræna tækni til að tryggja rekjanleika, gagnsæi og skilvirkni við söfnun gagna og miðlun upplýsinga sem tengjast umhverfismálum. Með því að haga starfsemi Búseta á samfélagslega ábyrgan hátt látum við gott af okkur leiða um leið og við stuðlum að heilbrigðum vexti sem er til hagsbóta fyrir félagsmenn og samfélagið í heild.
Framkvæmdastjóri staðfestir hér með sjálfbærniuppgjör félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2022 með undirritun sinni.
Reykjavík, 3. maí 2023
Bjarni Þór Þórólfsson framkvæmdastjóri, Búseti hsf.
Áritunaraðili: Dr. Jón Ágúst Þorsteinsson
Verkefnastjóri: María Þórisdóttir
Klappir grænar lausnir hf., (Klappir) hafa aðstoðað við gerð sjálfbærniuppgjörs fyrir Búseta. Sjálfbærniuppgjörið hefur að geyma helstu upplýsingar um umhverfisþætti, félagslega þætti og stjórnarhætti Búseta.
Ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra á sjálfbærniuppgjörinu
Stjórn og framkvæmdastjóri eru ábyrg fyrr gerð og framsetningu ófjárhagslegra upplýsinga, þ.m.t. upplýsingar um umhverfisþætti, samfélagsþætti, samkvæmt 66. gr. laga um ársreikninga nr. 3/2006.
Staðfesting Klappa
Við höfum skipulagt og hagað vinnu okkar í samræmi við meginreglur Greenhouse Gas Protocol aðferðarfræðinnar sem kveða á um að framsetning upplýsinga um losun gróðurhúsalofttegunda verði að vera lýsandi, nákvæm, heilleg, samræmd og gagnsæ. Einnig hefur vinnunni verið hagað í samræmi við UNGC, Nasdaq, ESG, SDG og GRI en tenging við þessa staðla eru dregin fram í uppgjörinu. Þar að auki hefur verið horft til væntanlegs Evrópustaðals, Draft ESRS-E-1 Climate Change.
Ég staðfesti hér með, með undirskrift minni, að þau gögn Búseta sem birt eru í sjálfbærniuppgjöri þessu vegna tímabilsins 1. janúar 2022 til 31. desember 2022, hafa verið yfirfarin og metin af sjálbærnisérfræðingum Klappa eftir bestu vitund. Gögn tengd félagslegum þáttum og stjórnarháttum voru ekki yfirfarin af Klöppum. Klappir bera því ekki ábyrgð á fjárfestingaákvörðunum sem teknar eru á grundvelli þeirra upplýsinga sem hér birtast.
Kópavogi, 5. maí 2023
Dr. Jón Ágúst Þorsteinsson forstjóri, Klappir
Um fyrirtækið
Búseti er húsnæðissamvinnufélag að norrænni fyrirmynd, rekið án hagnaðarsjónarmiða og í eigu félagsmanna hverju sinni. Markmið félagsins er að stula að öruggum búsetukostum þar sem unnið er að hagsmunum félagsmanna með sjálfbærni og langtímahugsun að leiðarljósi. Eignasafn félagsins telur ríflega 1200 fasteignar víðast hvar um Höfuðborgarsvæðið.
Skipulagsmörk
Við gerð uppgjörs Búseta hefur „Operational Control“ aðferðafræðin orðið fyrir valinu. Samkvæmt henni gerir fyrirtæki grein fyrir allri losun gróðurhúsalofttegunda frá þeim rekstrareiningum sem það hefur yfirráð yfir. Fyrirtækið gerir ekki grein fyrir losun gróðurhúsalofttegunda frá þeim rekstrareiningum sem það hefur ekki yfirráð yfir þrátt fyrir að það eigi hagsmuna að gæta af rekstri þeirra.
Undir uppgjör Búseta fellur rekstur eftirfarandi lögaðila:
Rekstrarmörk
Umfang 1
Losun vegna eldsneytisnotkunar farartækja í eigu og/eða rekstri Búseta
Umfang 2
Losun vegna raforkunotkunar í starfsstöð Búseta
Losun vegna notkunar á hitaveitu í starfsstöð Búseta
Umfang 3
Losun vegna meðhöndlunar og flutninga á úrgangi frá rekstri höfuðstöðva Búseta
Losun frá flugferðum starfsmanna vegna vinnu
Viðmiðunarár
Viðmiðunarár Búseta er 2019
Kolefnisuppgjör (E1): Losun Búseta nam 24 tonnum koltvísýringsígilda árið 2022. Losun í umfangi 1 og 2 nam samtals 12tCO2í og losun í umfangi 3 nam 11tCO2í.
Mikil lækkun varð í umfangi 1 og 2 á milli ára er vegna minnkandi eldsneytisnotkunar í kjölfar rafvæðingar bílaflota, gildin fóru úr 16,7 tCO2í niður í 12,5. Hækkun koltvísýringsígilda í umfangi 3 má rekja til fjölgunar flugferða á árinu, en vegna Covid-19 voru engar flugferðir tvö ár í röð.
Losunarkræfni (E2): Stærsti losunarþáttur Búseta árið 2022 var losun vegna eldsneytisnotkunar farartækja
Viðbætur frá síðasta uppgjöri: Í umfangi 3 bættist við eldneytis- og orkutengd starfsemi.
Orkunotkun (E3): Heildarorkunotkun Búseta árið 2022 nam 168.528 kWst. Orkunotkun samanstendur af rafmagns-, heitavatns-, og eldsneytisnotkun. Óbein orkunotkun vegna rafmagns og heitavatnsnotkunar nam 123.185 kWst.
Kolefnisjöfnun: Búseti hefur kolefnisjafnað kjarnarekstur sinn með mótvægisaðgerðum með fjárfestingu í skógrækt á vegum Kolviðar. Mótvægisaðgerðir jafngilda samtals 24 tCO₂í eða því sem nemur birtri losun í umafni 1, 2 og 3.
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
2.741 | |||||
52.029 | |||||
19.472 | |||||
14,4 | |||||
420,6 | |||||
92.792 | |||||
1.043 |
2020 | |||||||||
120,0 | |||||||||
-15,3 | |||||||||
1.265,1 | |||||||||
-17 | |||||||||
0,35 | |||||||||
0 | |||||||||
6,65 | |||||||||
-30,4 | |||||||||
43,31 | |||||||||
-12,8 | |||||||||
Nasdaq: E2|UNGC: P7, P8|GRI: 305-4 |SDG: 13|SASB: General Issue / GHG Emissions, Energy Management |
2020 | |||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
17,1 | |||||||||
0,8 | |||||||||
0,3 | |||||||||
18,2 | |||||||||
18,2 | |||||||||
0 | |||||||||
Nasdaq: E1|UNGC: P7|GRI: 305-1,305-2,305-3|SASB: General Issue / GHG Emissions|TCFD: Metrics & Targets |
2020 | |||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
151.8 | |||||||||
70.029 | |||||||||
16.721 | |||||||||
65.018 | |||||||||
70.029 | |||||||||
81.739 | |||||||||
Nasdaq: E3|UNGC: P7, P8|GRI: 302-1, 302-2|SDG: 12|SASB: General Issue / Energy Management |
2020 | |||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
10,539 | |||||||||
55,4 | |||||||||
360,8 | |||||||||
Nasdaq: E4|UNGC: P7, P8|GRI: 302-3|SDG: 12|SASB: General Issue / Energy Management |
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
46,1 | |||||
0 | |||||
53,9 |
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
Nei | |||||
Nei | |||||
Nei |
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
Já | |||||
Já |
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
Já |
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
0 | |||||
0 | |||||
2020 | |||||
Já |
2020 | |||||
5.831 | |||||
2.371 | |||||
3.460 | |||||
16,7 |
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
18,2 | |||||
18,2 |
2020 | |||||
11,45 | |||||
10 | |||||
14,1 | |||||
12,55 | |||||
82.217 |
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
2,32 | |||||
1,17 |
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
15 | |||||
43 | |||||
7 | |||||
8 | |||||
Já |
2020 | |||||
Já | |||||
Já | |||||
Já |
2020 | |||||
Já | |||||
- |
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
40 | |||||
0 |
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
Já | |||||
100 |
2020 | |||||
Nei |
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
100 |
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
Já |
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
Já |
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
Já | |||||
Já |
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
Já | |||||
Já | |||||
Nei |
2020 | |||||
---|---|---|---|---|---|
Já | |||||
Já | |||||
Nei |
2020 | |||||
Já |
Losunarkræfni
Tölur um losunarkræfni eru byggðar á samanlögðu umfangi 1, umfangi 2 og umfangi 3. Losunarkræfni reiknast sem losun gróðurhúsalofttegunda á valda rekstrarþætti og er sett fram sem tCO2í á einingu (svo sem tCO₂í á móti heildartekjum). Mælikvarðarnir mæla og bera losun fyrirtækisins saman við stærð rekstrarins.
Bein og óbein orkunotkun
Heildarorkunotkun tekur til allrar orku sem nýtt er af fyrirtækinu, að meðtöldu því eldsneyti sem notað er á ökutæki fyrirtækisins (umfang 1) og orku frá rafveitum og heitu vatni (umfang 2). Orkunotkunin er sett fram í kílówattstundum (kWst).
Orkukræfni
Orkukræfni reiknast sem heildarorkunotkun deilt í valda rekstrarþætti og er sett fram sem kWst á einingu (svo sem kWst á starfsmann í fullu stöðugildi). Mælikvarðarnir eru notaðir til að mæla orkunýtni og bera orkunotkun fyrirtækisins saman við stærð rekstrarins.
Úrgangskræfni
Úrgangskræfni reiknast sem heildarmagn úrgangs deilt í valda rekstrarþætti og er sett fram sem kg á einingu (svo sem kg á starfsmann í fullu stöðugildi).
Mótvægisaðgerðir
Aðgerðir till að koma í veg fyrir, draga úr eða ráða bót á neikvæðum umhverfisþáttum.
Umfang 2 (landsnet)
Losun í umfangi 2 (landsnet) (e. Scope 2 - Location-based) er óbein losun vegna framleiðslu notaðrar orku, þar sem að losun vegna orkunotkunar er áætluð útfrá meðallosun frá viðeigandi dreifikerfi orku innan uppgjörstímabils. Miðað við aðferðafræði GHG Protocol skal fyrirtæki birta losun í umfangi 2 (landsnet).
Úrgangur frá rekstri
Förgun og meðhöndlun á úrgangi mynduðum í rekstri fyrirtækis innan uppgjörstímabils.
Orkustjórnunarkerfi
Með orkustjórnunarkerfi er átt við stöðluð orkustjórnunarkerfi s.s. ISO 50001.
Klappir grænar lausnir hf.
1) Samkvæmt sértækum yfirlýsingum raforkusala keypti Búseti hsf. 100% endurnýjanlega raforku árið 2022. Yfirlýsing raforkusala árið 2022.
2) Rafmagnsnotkun í höfuðstöðvum Búseta er áætluð miðað við hlutfall af heildarnotkun húsnæðisins miðað við fermetrafjölda, en Búseti deilir húsnæði með öðrum rekstri.
3) Heitavatnsnotkun í höfuðstöðvum Búseta er áætluð miðað við hlutfall af heildarnotkun húsnæðisins miðað við fermetrafjölda, en Búseti deilir húsnæði með öðrum rekstri.
4) Umhverfisstefna Búseta er aðgengileg á vefsíðu félagsins.
Umhverfisstefna Búseta
5) Í umhverfisstefnu Búseta er fjallað sérstaklega um úrgangs- og orkumál.
6) Stefna Búseta gegn einelti, áreitni og ofbeldi fjallar um kynferðislegt áreiti og kynbundið ofbeldi, ásamt því tekur mannréttinda- og mannauðsstefna Búseta fyrir hvers kyns kynbundna mismunun.
Stefna gegn einelti, áreitni og ofbeldi
Mannréttindi og mannauður
7) Heilsu- og öryggisstefna Búseta er aðgengileg á vefsíðu félagsins.
Heilsu- og öryggisstefna
8) Í mannréttinda- og mannauðsstefnu Búseta, sem byggð er á 10 meginreglum Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi, vinnumarkað, umhverfismál og aðgerðir gegn spillingu, er tekið fram að afnám allrar nauðungar-, þrælkunar-, og barnavinnu skuli vera tryggt.
Mannréttindi og mannauður
9) Mannréttinda- og mannauðsstefna Búseta er aðgengileg á heimasíðu félagsins.
Mannréttindi og mannauður
10) Siðareglur birgja eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins.
Siðareglur birgja
11) Persónuverndarstefna Búseta er aðgengileg á vefsíðu félagsins.
Persónuverndarstefna